Jóla hvað? Bláar vetrarlúffur frá Ingu ömmu og Ögmundi afa
Bára Inga Ásmundsdóttir hefur verið búsett í Danmörku undanfarin ár en hún er fædd og uppalin í Garðinum. Hún svaraði nokkrum spruningum í Jóla hvað?
Fyrstu jólaminningarnar?
Ætli ég hafi ekki verið 5-6 ára og var í Útskálakirkju með honum Ögmundi afa og maður átti alltaf að vera stilltur í kirkju á jólunum, en ég þurfti að komast á klósett en þorði ekki að trufla afa kallinn svo það endaði með að ég byrjaði að gráta og Silvía sat fyrir framan mig og bjargaði mér svo afi þyrfti nú ekki að hætta að hlusta á ræðuna hjá Séra Guðmundi heitinum, eftir það man ég alltaf eftir jólunum.
Jólahefðir hjá þér?
Auðvitað byrjar allt með skötunni á Þorláksmessu þó ég búi erlendis. Borðum alltaf kl. 18:00 á aðfangadag og jóladagur byrjar með hangikjéti kl. 13:30 og svo er spilað, spjallað og borðað enn meira allan daginn. Og auðvitað endum við jóladag alltaf á kókostertu!
Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðirnar?
Sko ég er svo heppin að eiga systur sem er ofvirk í eldhúsinu svo ég er aðallega bara hjálparhella.
Uppáhalds jólamyndin?
Get alltaf horft á Home Alone og svo sá ég nú eina hrikalega fyndna núna í ár sem heitir A very Harold & Kumar 3D Christmas. Hugsa nú samt að hún verði ekki uppáhalds.
Uppáhalds jólatónlistin?
Gamall safndiskur sem heitir Rokk og Jól
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Heima í Danmörku, sumar á netinu á Íslandi en í ár næstum allar í Bandaríkjunum.
Gefurðu mikið af jólagjöfum?
Líklegast verð ég að segja já við því, bóndinn hristir hausinn hver jól.
Ertu vanafastur/föst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Skil ekki af hverju! en ég er alltaf að skúra á síðustu stundu, sjálfsagt orðinn vani.
Besta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Bláar vetrarlúffur frá Ingu ömmu og Ögmundi afa, var svakalega ánægð með þær!
Hvað langar þig í jólagjöf?
Að vera heima hjá fjölskyldunni!
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Alltaf heitir það léttreyktur lambahamborgarhryggur með katröflusalati og öllu tilheyrandi
Eftirminnilegustu jólin?
Árið 2002