Jóla hvað? Björgvin Halldórsson kemur með jólin
Fanney Dóróthe Halldórsdóttir býr í Sandgerði þar sem hún er skólastjóri grunnskólans. Hún er 38 ára og gift Arnari Óskarssyni aðstoðarverslunarstjóra Byko á Suðurnesjum. Saman eiga þau þrjú börn, þau Ósk, Thelmu og Óskar sem hlakka öll mikið til jólanna. Fjölskyldan á saman sérstakt jóladagatal sem er ansi skemmtilegt. Jólin koma aldrei almennilega í hús hjá Fanneyju og fjölskyldu hennar fyrr en Björgvin Halldórsson þenur raddböndin og fjölskyldan hefur það gjarnan notalegt í náttfötunum fyrir framan sjónvarpið um hátíðirnar.
Fyrstu jólaminningarnar?
Það koma upp nokkrar myndir í hugann. Ein hjá ömmu og afa á Suðurgötunni í Keflavík. Í minningunni var alltaf snjór, amma í eldhúsinu, öll stórfjölskyldan saman, heimagerði jólaísinn hennar ömmu með ávöxtum úr dós og stórar hnallþórur. Önnur minning um mig og mömmu að setja carmen rúllur í hárið, lakka neglurnar og gera okkur sætar og fínar saman. Mamma á afmæli 20. desember og við skreyttum alltaf jólatréð á afmælinu hennar. Við áttum amerískt gervijólatré sem í minningunni var risastórt (líklega 1,50 cm).
Jólahefðir hjá þér?
Uppáhalds jólahefðin mín er líklega jóladagatal okkar fjölskyldunnar. Dagatalið okkar virkar þannig að ég set miða í dagatalið á hverjum degi. Á miðanum er eitthvað sem við fjölskyldan eigum að gera saman þann daginn. Þarf ekki að vera mikið, langt né flókið. Bara svona þetta vanalega sem fjölskyldur gera saman, baka, versla jólagjafir, pakka inn, skreyta, fara á tónleika, bíó eða bara elda eitthvað saman. Oftast tengist það samt jólaundirbúningnum. Þetta hefur alla tíð verið vinsæl hefð hjá börnunum mínum og þau bíða spennt eftir hvað stendur á miðanum á hverjum morgni.
Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðirnar?
Ætli það ekki bara. Finnst mjög gaman að baka alls konar jólatrjóla, hefðbundnar smákökur og svo að prófa eitthvað nýtt á hverju ári. Elska að elda jólamatinn, dúlla í jólasósunni minni og nostra við alls kyns meðlæti.
Jólamyndin?
Love Actually kemur fyrst upp í hugann en þær eru mjög margar góðar. Við erum miklir sjónvarps „gláparar“ yfir jólahátíðina. Það er fátt betra en að slappa af heima í náttfötunum um jólin og horfa á góða jólamynd. Ég hlakka líka mikið til að fara á Hobbitann um þessi jól!
Jólatónlistin?
Þegar ég var í lokaprófunum í Kennó fyrir langa löngu gaf maðurinn minn mér óvænt jóladisk með Celine Dion. Hann er alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér, maðurinn og diskurinn. Bjöggi Halldórs stendur líka alltaf fyrir sínu, en við förum alltaf á jólatónleikana með honum. Það eru ekki komin jól heima hjá mér fyrr en Björgvin er farinn að hljóma um húsið.
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Það er mjög misjafnt. Ég er að tína gjafirnar inn í rólegheitum í október og nóvember. Við förum samt alltaf þessar týpísku ferðir á höfuðborgarsvæðið og gerum loka stórinnkaupin okkar.
Gefurðu mikið af jólagjöfum?
Nei, nei, ekkert svo. Nærfjölskyldan og nánir vinir fá eitthvað fallegt.
Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Ætlaði að svara þessu neitandi en þegar ég fer að huga að því þá er ég það líklega. Geri sömu hlutina á hverju ári og jólin koma ekki nema réttu hlutirnir séu gerðir í réttri röð. Sýð t.d. alltaf jólahangikjötið á Þorláksmessu og heimsæki uppáhaldsfólkið mitt á aðfangadag.
Besta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Uppáhalds jólagjafirnar mínar eru tvær, báðar frá börnunum mínum. Sú fyrri eru tvær styttur sem ég er með inni í svefnherbergi hjá mér af fallegum litlum tvíburastelpum og strák sem heldur á hjarta úr gulli. Hina fékk ég í fyrra og er einnig frá afkvæmum mínum. Mynd sem tengdasonurinn tók af gullmolunum mínum prentuð á stóra álplötu.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Hátíðarkjúklingur og hamborgarhryggur með heimsins bestu jólasósu! Eiginmaðurinn sér um forréttinn sem er alltaf eitthvað nýtt og framandi. Fæ svo góða gesti í heitt súkkulaði og sörur þegar líða fer á kvöldið.
Eftirminnilegustu jólin?
Ætli það séu ekki fyrstu jólin með börnunum mínum. Jólin fá aftur æskuljóma og nýja merkingu þegar maður er orðin mamma. Börnin gera jólin að þessari fullkomnu hátíð sem þau eru.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Góða bók hljómar vel. Mér skilst að það séu spennandi bókajól framundan og fullt af nýjum höfundum að skjóta upp kollinum. Væri líka alveg til í nýja skó og galla í ræktina, já og kannski ég biðji um rúmföt enn ein jólin. Hef nefnilega ekki fengið þau enn. Svo auðvitað gleði og kærleika. Er það ekki alltaf vinsælt? Það er alla vega í miklu uppáhaldi hjá mér.