Jógvan og Friðrik Ómar syngja í Keflavíkurkirkju
Þeir félagar Friðrik Ómar og Jógvan Hansen eru á fleygiferð um landið vítt og breitt sumarið 2011. Þann 15. júní ætla þeir að troða upp í Keflavíkurkirkju og hefjast tónleikarnir klukkan 20:00. Plata þeirra félaga, Vinalög, sló í gegn og var mest selda plata ársins 2009. Núna eru þeir komnir saman aftur og ætla að flytja lög af plötunni auk ýmissa laga sem eru í uppáhaldi hjá þeim. Frábær kvöldstund sem þú mátt ekki missa af. Húsið opnar hálftíma fyrir tónleika. Miðaverð 2000.-