Jófríður í Samaris tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna
Tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir er tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem söngkona ársins. Jófríður er í hljómsveitinni Samaris en sveitin er tilnefnd til verðlauna í flokknum myndband árins fyrir myndband við lagið wanted 2 say í leikstjórn Þóru Hilmarsdóttur.
Jófríður er 22 ára gömul, bjó í Keflavík í æsku og gekk í Heiðarskóla og á ættir sínar að rekja til Suðurnesja.
Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Hörpu fimmtudaginn 2. mars. Sýnt verður frá athöfninni í beinni útsendingu á RÚV.