Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Íslensk náttúra og sveitir landsins er best í heimi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 3. september 2022 kl. 08:21

Íslensk náttúra og sveitir landsins er best í heimi

– segir Íris Sigtryggsdóttir sem tekur Ljósanótt fagnandi

Íris Sigtryggsdóttir segir það hafa komið í ljós í Covid hversu Ljósanótt er mikilvæg í okkar menningarlífi hér á Suðurnesjum, tækifæri til að hitta vini og fjölskyldu og njóta saman. Íris skipti sumarfríinu í þrjá hluta og fór m.a. í hestaferð norður í land, auk þess að fara á fjórhjóli horn í horn eða frá Reykjanesvita að Fonti á Langanesi.

Hvernig varðir þú fyrsta sumarfríinu án takmarkana?

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Ég tók sumarfríið mitt í þremur hlutum og ferðaðist bæði innanlands og erlendis. Fór í hestaferð norður í land í viku með fimmtán ótrúlega flottum hestakonum úr öllum stigum lífsins. Hópur sem hittist á hverju sumri og ríða saman í náttúru Íslands og njóta. Ég skellti mér svo til Bandaríkjanna með syni mínum og við hittum þar vini og fjölskyldu og nutum saman í viku. Svo var það ferðin sem toppaði allt í sumar, þegar ég keyrði með fjórtán manns á fjórhjólum Horn í Horn, eða frá Reykjanesvita til Langanesvita (Fonturinn) og tilbaka, u.þ.b. 1.800 km á sex dögum. Félagsskapur Melrakka sem ég hef hjólað með í nokkur ár, frábær félagsskapur og tækifæri til að skoða náttúru Íslands með öðrum hætti.“

Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?

„Það sem kom mér skemmtilega á óvart í sumar var kannski hvað við erum fljót að jafna okkur frá þeim takmörkunum sem við vorum í síðastliðin tvö ár, sennilega einkennist það af okkar einstöku eiginleikum að gleyma fljótt og halda áfram, lifa í núinu og njóta.

Íslensk náttúra og sveitir landsins eru best í heimi, eins og ég nefndi þá ferðast ég mikið á fjórhjólinu mínu og get því farið ótroðnar slóðir að vissu marki eða leiðir sem almennt fólk ferðast ekki mikið um, það eru algjör forréttindi að geta og upplifun að sjá.“

Hvað ætlar þú að gera í vetur?

„Í vetur skelli ég mér kannski aðeins í sólina, svo auðvitað skelli ég nagladekkjunum undir hjólið og held áfram að ferðast á því. Jöklarnir og snjórinn er algjört uppáhald hjá mér. Melrakkar og aðrir hjólafélagar eru duglegir að ferðast um landið líka á veturnar, alltaf líf og fjör í þeim félagsskap.“

Hvernig finnst þér Ljósanótt?

„Ljósanótt er auðvitað búin að vera stór þáttur í okkar lífi hér á Suðurnesjum í mörg ár. Ég held að það hafi komið í ljós í Covid hversu mikilvæg hún er í okkar menningarlífi hér á Suðurnesjum, tækifæri til að hitta vini og fjölskyldu og njóta saman. Tilefni til að bjóða heim og koma saman.“

Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?

„Ég ætla að reyna sækja sem mest, tónlist, matur og menningu eins og hægt er að komast yfir.“

Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?

„Besta minningin frá Ljósanótt er klárt mál þegar minn árgangur hélt upp á 50 ára hittinginn eins og hefð hefur verið fyrir hér á Ljósanótt, hitta skólafélagana og eiga glaðar stundir saman, það var ótrúlega skemmtileg helgi.“