Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Írsk þjóðlagastemning í Saltfisksetrinu á laugardaginn
Fimmtudagur 16. mars 2006 kl. 15:18

Írsk þjóðlagastemning í Saltfisksetrinu á laugardaginn

Írsk þjóðlagastemning verður í Saltfisksetri Íslands í Grindavík á laugardag 

Þjóðlagasveit Tónlistarskólans í Grafarvogi kemur í heimsókn ásamt kennara sínum Wilmu Young og spilar í sal Saltfisksetursins þann 18. mars kl. 17:00. 

Sveitin spilar fjörug  þjóðlög frá Írlandi, Skotlandi, Svíþjóð og Hjaltlandseyjum með grípandi takti sem heillar alla.

Síðastliðið vor tók sveitin þátt í þjóðlagahátíð í Ennis, County Clare á Írlandi einnig hafa þau gefið út geisladisk.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024