Bygg
Bygg

Mannlíf

Innistæða - síðasta sýningarhelgi
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl. 09:18

Innistæða - síðasta sýningarhelgi

Sýningunni Innistæða, verk í eigu Landsbankans fer nú að ljúka og framundan er síðasta sýningarhelgi. Á sýningunni má sjá 30 málverk frá tímabilinu 1900-1990 eftir ýmsa helstu listamenn þjóðarinnar og tilraun gerð til að rekja íslenska listasögu með hjálp þessara verka.


Sýningin var alltaf hugsuð sem sérstök skólasýning en Listasafn Reykjanesbæjar er eina listasafnið á Suðurnesjum og hefur þar af leiðandi ýmsum skyldum að gegna auk hefðbundinnar safnastarfsemi. Í stofnskrá safnsins er t.d. mikið gert úr menntunarhlutverki safnsins og sérstaklega tekið fram að því sé ætlað að efla þekkingu og áhuga á myndlist.


Sýningarstjórinn, Aðalsteinn Ingólfsson verður með leiðsögn um sýninguna laugardaginn 12. desember kl. 13.30.


Bílakjarninn
Bílakjarninn