Idol stjarna, gönguferð og vatnsleikfimi í Bláa Lóninu – heilsulind um páskana
Söngur nýrrar Idol stjörnu, spennandi gönguferð og létt vatnsleikfimi er meðal þess sem býður gesta Bláa Lónsins – heilsulindar um páskana.
Á skírdag, fimmtudaginn 13. apríl kl 14.00, mun Snorri Snorrason, ný Idol stjarna skemmta gestum heilsulindarinnar. Snorri mun einnig árita plaköt fyrir aðdáendur sína.
Á annan í páskum, býður Bláa Lónið upp á gönguferð samstarfi við leiðsögumenn Reykjaness. Gangan hefst kl. 13.00 á bílastæði heilsulindar og er áætlað að hún taki um 1 _ klukkustund. Enginn þátttökukostnaður er í gönguna.
Gengið verður m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem hraunið kom úr á sögulegum tíma), haldið austur með suðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og hin fornu sel Grindvíkinga. Þá verður gengið yfir að svæði Hitaveitu Suðurnesja og um hið litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind.
Leitast verður við að bæði ferðin og fræðslan verði með þeim hætti að börn jafnt sem fullorðnir hafi gagn og gaman af. Góður skófatnaður æskilegur. Þátttakendur fara á sína eigin ábyrgð í gönguna.
Kl. 15.00 á annan í páskum mun Birna Guðmundsdóttir, íþróttakennari, bjóða gestum heilsulindar upp á létta vatnsleikfimi og teygjur ofan í lóninu.
Bláa Lónið – heilsulind er opin alla páskahelgina frá kl 10.00 – 20.00.
Myndin er af vef Idol Stjörnuleitar.