Idol-brottrekstur: Tilboðin streyma til Arnars
Mikið upphlaup varð í gær þegar Arnar Dór Hannesson keppandi í Idol stjörnuleit var rekinn úr keppni vegna viðtals sem birtist í Víkurfréttum í gær og á vf.is á miðvikudagskvöld. Suðurnesjamenn virðast sætta sig illa við að Arnar Dór hafi verið rekinn úr keppni og hafa símalínur Víkurfrétta verið rauð glóandi síðan ákvörðun um brottreksturinn var tekin þar sem reiðir íbúar lýstu vanþóknun sinni á brottrekstrinum. Fjölmiðlar í gær fjölluðu um málið og má með sanni segja að Arnar Dór sé einn umtalaðasti einstaklingur landsins þessa dagana.
Arnar Dór segist vera hálfskelkaður yfir öllu þessu uppnámi. „Auðvitað líður mér ekki vel, en ég læt þetta ekki stoppa mig í því sem ég ætla mér að gera. Að mínu mati er um rosalega mikinn misskilning að ræða hjá báðum aðilum, en við því er ekkert að gera eins og staðan er í dag,“ segir Arnar Dór en hann telur að hann hefði átt að fá að halda áfram. „Samkvæmt því sem áður hefur komið fram varðandi þessa tvo einstaklinga þá finnst mér að ég hefði átt að fá að halda áfram. En ég er hættur að velta mér upp úr þessu. Ég vil þó taka það skýrt fram að ég kann rosalega vel við Karl í Grindavík og tel hann frábæran söngvara. Mér þykir leitt að hann hefði dregist inn í þessa umræðu, en ég varð að benda á atriðið varðandi hann til að sýna tvískinnungsháttinn í málinu.“
Arnar segist hafa vitað að með því að veita Víkurfréttum viðtal að þá væri hann að fara inn á grátt svæði. „Ég vissi að þetta væri á gráu svæði, en ég vildi líka vekja athygli á því hve mismunandi umfjöllun keppendur hafa fengið. Ég vil þó taka það skýrt fram að ég tel Víkurfréttir ekki eiga neina sök á málum, enda var blaðið í raun að styðja við bakið á mér með umfjöllun sinni. Víkurfréttir hefðu aldrei birt viðtalið og ég aldrei samþykkt það ef það hefði verið vitað að svona myndi fara,“ segir Arnar Dór og brosir.
Arnar segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi frá því hann var rekinn úr keppninni. „Síminn hefur ekki stoppað hjá mér. Það hefur fullt af fólki sent mér sms, tölvupóst og margir hafa hringt. Ég vil bara þakka þann stuðning sem mér hefur verið sýndur,“ segir Arnar og hann er staðráðinn í því að halda áfram á tónlistarbrautinni. „Í gærkvöldi og í dag hef ég verið að fá tilboð sem ég er að skoða. Ég mun t.d. syngja í Stapanum um jólin, mér bauðst að syngja tvö lög í hljóðveri og það er ýmislegt annað í skoðun,“ segir Arnar en eins og komið hefur fram í fjölmiðlum mun Arnar Dór fara með eitt af hlutverkunum í söngleiknum Hárinu sem settur verður upp af Fjölbrautaskólanum í Breiðholti eftir áramótin.
En ætlar Arnar Dór að fylgjast með Idol keppninni á Stöð 2 í kvöld?
„Já að sjálfsögðu. Fólkið sem þar er að keppa eru allt vinir mínir og ég óska þeim öllum góðs gengis.“
Efri myndin: Idol ljósmynd samsett á Víkufréttum.
Neðri myndin: Arnar Dór mátti ekki tjá sig við Víkurfréttir og því var hann settur upp í anda Bubba Morthens úr auglýsingaseríu Idol.