Iðandi tónlist allt í kring
Margrét Pálsdóttir svarar verslunarmannahelgarspurningum VF
Margrét Pálsdóttir
Hvert á að fara um verslunarmannahelgina í ár?
Ég ætla að vera heima og hafa það huggulegt. Mig langar á tónleika á Bryggjunni í Reykjavík á fimmtudagskvöldið og á Opið svið á Bryggjunni í Grindavík á föstudagskvöldið. Innipúkinn gæti heillað mig á laugardaginn og svo fer ég örugglega á tónleikana Leikhúsperlur á Gljúfrasteini á sunnudaginn. Sem sagt, iðandi tónlist allt í kring.
Með hverjum á að fara?
Ég verð að sjálfsögðu með kærastanum og svo er aldrei að vita hvort einhverjir fleiri bætast við.
Lætur þú veðurspá ráða því hvert á að fara um verslunarmannahelgina?
Nei, mér finnst besta veðrið alltaf vera þar sem ég er hverju sinni.
Hvert hefur þú farið um verslunarmannahelgi síðustu ár?
Ég hef oftast verið heima og notið þess í botn. Ég fékk ágætan skammt af útihátíðum hér áður fyrr og á frá því góðar minningar. Það nægir mér í bili. Þó er aldrei að vita hvað gerist síðar. Það gæti verið gaman að fara á útihátíð í ellinni.
Hvert hefur þú farið í ferðalög í sumar?
Ég fór til Hollands, Frakklands og Þýskalands nú í júlí og hef skroppið í nokkrar dagsferðir um Suðurlandið. Allt finnst mér þetta jafn skemmtilegt.
Hvernig ferðalög ertu að stunda? Ferðu í sumarbústað eða í ferðavagna?
Það fer allt eftir því hvað mér býðst hverju sinni. Mér finnst gott að skjótast í bústað en er minna fyrir ferðavagnana.
Hefur þú verið heppin með veður á ferðalögum þínum í sumar?
Já, veðrið hefur leikið við mig í allt sumar. Mér finnst notalegt að vera úti þegar sólin skín og þegar rignir ösla ég um í stígvélum þegar ég nenni. Reyndar er rigningin prýðilegt lestrarveður og góð afsökun fyrir því að gera ekki neitt.