Iceglass sýnir á Listatorgi Sandgerðis
Glerlistamennirnir og mæðginin frá Iceglass sýna í fyrsta sinn einstaklingssýningu á Íslandi á Listatorgi Sandgerðisbæjar nk. laugardag.
Guðlaug Brynjarsdóttir og sonur hennar Lárus Guðmundsson reka opna vinnustofu að Grófinni 2 í Reykjanesbæ og hafa aðallega sýnt áður á alþjóðlegum vettvangi þar á meðal í París og New York.
Sýningin opnar klukkan 14:00, laugardaginn 21. júlí og stendur í fjórar vikur.
Á sýningunni gefur að líta breiða mynd af heildarverkum þeirra.