Bygg
Bygg

Mannlíf

Hye Joung Park og Karl Ómarsson með sýningu í Suðsuðvestur
Þriðjudagur 30. janúar 2007 kl. 11:00

Hye Joung Park og Karl Ómarsson með sýningu í Suðsuðvestur

Laugardaginn þriðja febrúar, kl. 16, opna listamennirnir Hye Joung Park og Karl Ómarsson sýningu í Suðsuðvestur, Hafnargötu 22, Keflavík.  Sýningin verður opin á föstudögum milli kl. 16 og 18 og á laugardögum og sunnudögum milli kl. 14 og 17.30 til 25. febrúar
Hye  og Karl hafa unnið saman áður en vegna ólíkrar nálgunar þeirra hefur þeim tilraunum verið líkt við samvinnu snigilsins og býflugunnar.  Í þetta sinn áttu hugleiðingar þeirra stefnumót á fyrirfram ákveðnum stað sem hefur sett mark sitt á verkin og þau hafa fléttast saman í eina innsetningu.  Í Suðsuðvestur hafa þau dregið fram óræð mörk þar sem sýningargestir eiga þess kost að skima eftir snertingu verka sem teygja sig og vaxa.

Úr sýningarskrá

Yfirráðasvæði áhorfandans er truflað með sterkri nærveru. Markvisst er unnið með tungumál myndarinnar og uppfærslan er rækilega ígrunduð. Vinna tveggja listamanna er framlengd og rennur saman í eitt. Rýmið teygir sig yfir í kynlausan líkama.

Öryggisleysi grípur hvern sem gefur sér tíma til þess að mæta sterkri framsetningu og hamskiptum miðlunar. Endurtekinn og vélrænn andardráttur kallar fram ósjálfráð viðbrögð og móttækilegur sýningargestur gæti því hæglega gengið inn í ástandið líkt og í leiðslu. Tilfinning fyrir æðaslætti og þrengingu í hálsi eykst. Hægt og rólega skýrast þó línurnar og maður nær tökum á kringumstæðum á ný.

Þess má geta að Hey Park (Suður Kóreu) hlaut Pennaverðlaunin í síðustu viku.
Bílakjarninn
Bílakjarninn