Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Hvetur til markaðsátaks fyrir Reykjanesið en hefur áhyggjur af kísilveri í Helguvík
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 4. júní 2020 kl. 11:40

Hvetur til markaðsátaks fyrir Reykjanesið en hefur áhyggjur af kísilveri í Helguvík

„Maður er svolítið hræddur um að Suðurnesin verði útundan í ferðaátakinu. Ég held að margir, og líka heimamenn, geri sér ekki grein fyrir því hvað Reykjanesið er flott. Við þyrftum að fara í átak um það að það sé gaman að koma á svæðið, hér er allt til alls, gisting, tjaldsvæði, matur og afþreying. Ég held að það séu alltof margir sem viti ekki af því. Gott markaðsátak fyrir Suðurnesin væri vel þegið núna, sagði Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómanafélags Keflavíkur og nágrennis í viðtali við Víkurfréttir en hún hefur áhyggjur af framkvæmdum við endurreisn kísilvers í Helguvík.

„Þetta er óþægileg umræða. Auðvitað viljum við fleiri störf en þessi störf hjá kísilverksmiðju eru  mörg sérhæfð. Verða þau fyrir Íslendinga eða þurfum við að fá þjálfað vinnuafl til að sinna þeim? Við vitum öll af mengun, hávaða og leiðindum sem fylgdi starfsemi fyrri verksmiðju. Það þyrfti að bæta mikið allan aðbúnað og sjálfa verksmiðjuna. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hafa eigendur verksmiðjunnar verið í sambandi við ykkur?

„Ekki núna nýlega. Við fylgjumst að sjálfsögðu með stöðunni. Ef verksmiðja fer í gang er mikilvægt að staðið verði vel að samningum við starfsfólk. Því var óbótavant hjá fyrri eiganda. Þeir þurfa að fara í mikla vinnu til að sannfæra fólk á Suðurnesjum um þetta verði ekki eins og hjá fyrri eiganda. Það er mikil andstaða fyrir þessari starfsemi held ég í Reykjanesbæ.“

Guðbjörg var í viðtali í Víkurfréttum þar sem hún fór yfir stöðu mála á Suðurnesjum.