Hver er Qmen stúlkan?

Ein stúlka mun birtast í hverju tölublaði Víkurfrétta fram eftir sumri en einnig verður hægt að sjá myndir af stúlkunum á netinu og eiga netverjar kost á því að kjósa sína stúlku eftir sumarið á Qmen síðu Víkurfrétta á vefnum. Þær kosningar vega síðan á móti dómnefnd en áformað er að halda lokakeppni í Reykjanesbæ eftir sumarið en dagsetning fyrir það hefur ekki verið ákveðin.
Stúlkurnar eru í fötum frá tískufataversluninni Mangó en ljósmyndirnar eru teknar víðsvegar í náttúrunni á Suðurnesjum.