Hvað segja ungir á veirutímum?
Unga fólkið er að nýta tímann á margvíslegan hátt nú þegar heimsfaraldur geisar. Sólborg Guðbrandsdóttir heyrði í fjórum ungmennum á Suðurnesjum og spurði þau út í stöðuna á tímum COVID-19.
Veirutími nýttur í lærdóm
Súsanna Margrét Gunnarsdóttir hefur notað veirutímann vel í lærdóm og er bjartsýn á gott sumar.
Hvernig hafa síðustu vikur verið hjá þér?
Mjög svo rólegar en auðvitað stress varðandi þessa veiru. En á meðan ég #HlýðiVíði þá vona ég nú að allt fari á besta veg miðað við aðstæður.
Að hvaða leyti hefur líf þitt breyst í samkomubanninu?
Það hefur auðvitað alveg breyst eitthvað en maður reynir bara að aðlaga sig að þessu öllu saman. Ég er þjálfari hérna í Reykjanesbæ og öllum líkamsræktarstöðvum hefur auðvitað verið lokað svo ég hef verið að nota þennan auka tíma í lærdóm og hef einnig verið að baka í meira mæli eins og öll þjóðin víst.
Hvernig heldur þú að sumarið verði?
Vonandi bara frábært. Við getum undirbúið okkur fyrir það versta en er ekki alltaf best að vonast eftir því besta?
Hvað hefur hjálpað þér að halda heilsu í gegnum þetta?
Hreyfing! Hún er merkilega mikilvæg, bæði fyrir líkamlegu og andlegu hliðina og það að halda einhvers konar rútínu.
Slæm áhrif á sumarvinnuna
Árni Þór Guðjónsson hefur verið í fjarkennslu í Verslunarskólanum og einnig notið þess að vera heima með fjölskyldunni á veirutímum
Hvernig hafa síðustu vikur verið hjá þér?
Alveg síðan samkomubannið byrjaði hef ég verið heima í fjarkennslunni og í páskaviku naut ég páskafrísins.
Að hvaða leyti hefur líf þitt breyst í samkomubanninu?
Árið mitt byrjaði þannig að ég var næstum allan janúar og febrúar í bænum á æfingum fyrir söngleik Verzló. Þar af leiðandi hitti ég ekki fjölskylduna mína nema kannski einu sinni, tvisvar, í viku. En samkomubannið virðist vera að jafna það út þar sem ég er búinn að vera með þeim heima 24/7 síðustu vikur sem er bara geggjað!
Hvernig heldur þú að sumarið verði?
Ég hef einhvern veginn enga hugmynd við hverju ég á að búast en þetta hefur auðvitað slæm áhrif á sumarvinnuna mína sem er að mestu leyti að gera brúðkaupsmyndbönd vegna þess að margir eru að fresta brúðkaupunum sínum.
Hvað hefur hjálpað þér að halda heilsu í gegnum þetta?
Tónlist og aukin útivera hefur hjálpað mér mikið.
Göngutúrar og podcast
Karín Óla Eiríksdóttir hefur haft meiri tíma með sínu nánasta fólki og áhugamálunum sem hefur hún vananlega ekki.
Hvernig hafa síðustu vikur verið hjá þér?
Síðustu vikur hafa verið frekar rólegar. Ég er vön að hafa mikið að gera og vera á fullu í skóla, vinnu, björgunarsveitarstarfinu og félagslífinu. Það hefur orðið mikil breyting á því þar sem að skólinn og vinnan eru lokuð, öll skipulögð starfsemi innan björgunarsveitarinnar hefur verið sett á pásu og frekar lítið um að vera í félagslífinu um þessar mundir.
Að hvaða leyti hefur líf þitt breyst í samkomubanninu?
Ég er í fjarnámi í skólanum og get því lært á þeim tíma sem að ég vil sem hentar mér mjög vel. Ég hef haft meiri tíma til að sinna mínu nánasta fólki og áhugamálum sem ég gef mér vanalega ekki mikinn tíma í.
Hvernig heldur þú að sumarið verði?
Ég held að þetta sumar eigi eftir að vera ólíkt því sem við erum vön, ekki jafn mikið af ferðalögum og útihátíðum. Ég stefni að því að vera dugleg að vinna og eyða tíma með fólkinu mínu. Svo heldur maður auðvitað í vonina og stefnir að því að mæta í dalinn í byrjun ágúst.
Hvað hefur hjálpað þér að halda geðheilsu í gegnum þetta?
Samverustundir, heimaæfingar og göngutúrar og skemmtilegir podcast-þættir eru það helsta sem hefur hjálpað mér.
Erfitt að hitta ekki fjölskylduna
Þóra Lind Halldórsdóttir finnst skrýtið að hafa ekki hitt fjölskyldu, vini og skólafélaga og þakklát fyrir að allir í fjölskyldunni séu heilbrigðir
Hvernig hafa síðustu vikur verið hjá þér?
Síðustu vikur hafa verið rólegar en svolítið krefjandi og í mikilli óvissu. Það hefur ekki mikið breyst þegar það kemur að daglegu lífi þar sem ég er að skrifa BS ritgerðina mína við Háskóla Íslands og ég var búin að vera mikið heima að vinna í henni fyrir samkomubannið. Síðan held ég áfram að mæta í vinnuna mína samhliða því. Það er hins vegar erfitt að hitta fjölskyldu og vini svona lítið og að vera ekki með fasta rútínu.
Að hvaða leyti hefur líf þitt breyst í samkomubanninu?
Skólinn minn lokaði svo námið mitt hefur breyst í fjarnám, crossfit-stöðin þar sem ég æfi er einnig lokuð og það er skrýtið að hitta ekki fjölskyldu, vini og skólafélaga. Síðan var erfitt að eyða ekki páskunum með fjölskyldunni eins og vaninn er. Þar að auki er ég að útskrifast núna í vor og fyrirkomulagið á lokaprófum, lokaritgerðinni og útskriftinni mun líka breytast. Þetta eru hins vegar hlutir sem skipta ekki öllu máli og ég er mjög þakklát að allt fólkið mitt sé heilbrigt og hafi ekki lent í því að smitast.
Hvernig heldur þú að sumarið verði?
Mér finnst sumarið vera mikil óvissa fyrir alla. Ég held það verði ennþá takmarkanir á mörgu sem er skiljanlegt. Öllu sem ég hafði skipulagt í sumar hefur verið frestað eða aflýst og einnig hefur sumarvinnan mín breyst vegna ástandsins. Það kemur vonandi í ljós fljótlega hvernig sumarið verður og þó að óvissan sé erfið veit ég að, hvernig sem þetta verður, þá er það gert í hag okkar allra. Ég mun vonandi ná að ferðast eitthvað innanlands og ef veðrið verður eitthvað í líkingu við sumarið 2019 þá get ég ekki kvartað.
Hvað hefur hjálpað þér að halda heilsu í gegnum þetta?
Það hefur hjálpað mér mjög mikið að halda rútínu, vakna alltaf á svipuðum tíma, taka heimaæfingar, heyra í fjölskyldu og vinum og svo finnst mér ótrúlega gott að fara út að labba en það er eitthvað sem ég vanmat mikið áður en þetta ástand skall á. Mér finnst mikilvægt að vera jákvæð en á sama tíma að leyfa sér líka bara að eiga slæman dag annað slagið í svona skrýtnu ástandi.