„Hvað ertu tónlist?“
 Jónas Ingimundarson býður tónlistaráhugamönnum í ferðalag um heim tónlistarinnar ásamt söngkonunni Sigrúnu Hjálmtýsdóttur (Diddú) á morgun, fimmtudaginn 21. október í Duushúsum.
Jónas Ingimundarson býður tónlistaráhugamönnum í ferðalag um heim tónlistarinnar ásamt söngkonunni Sigrúnu Hjálmtýsdóttur (Diddú) á morgun, fimmtudaginn 21. október í Duushúsum.Yfirskrift tónleikanna er „Hvað ertu tónlist?“ og situr Jónas við flygilinn þar sem farið verður vítt og breitt um lendur tónlistarinnar í tali og tónum.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Tónlistarfélags Reykjanesbæjar og Miðstöðvar símentunar á Suðurnesjum.
Miðaverð er kr. 1.500 og verður boðið upp á kaffi og konfekt í hléi.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				