Húshólmaferð frá Grindavík á morgun
Í tilefni af útgáfu á Húshólmaritinu vill Ferðamálafélag Grindavíkur bjóða áhugasömum íbúum Grindavíkur og öðrum landsmönnum í Húshólmagöngu laugardaginn 23. júlí n.k. Áhugasamir geta annaðhvort mætt við bæjarskrifstofuna (við verslunarmiðstöðina) í Grindavík kl. 13:00 og þegið rútuferð á staðinn í boði Ferðamálafélags Grindavíkur eða mætt á Ísólfsskálavegi undir Krýsuvíkur-Mælifelli kl 13:30. Gengið verður niður í Húshólma undir leiðsögn Grindvíkingsins Ómars Smára Ármannssonar og hinar fornu minjar skoðaðar. Gangan, sem varir í 3 klst. (fram og til baka), verður róleg og tiltölulega auðveld. Fólk er hins vegar hvatt til að taka með sér nesti og búa sig eftir veðri. Ferðin verður eftirminnileg. Léttleikinn verður í fyrirrúmi og ekki er ólíklegt að fornmaður einn sem lokaðist inni í Húshólmanum þegar Ögmundarhraun brann árið 1151 verði þar á vappi ?