Húsfyllir á tónleikum Karlakórsins
Karlakór Keflavíkur hélt síðustu tónleikana í vortónleikaröð sinni í Ytri-Njarðvíkurkirkju á mánudagskvöld. Greinilegt var að enginn vildi láta þessa tónleika hjá sér fara því kirkjan var þéttsetin. Húsið fylltist fljótlega og var þá brugðið á það ráð að sækja fleiri stóla en gestir voru svo sannarlega ekki sviknir af dagskránni.
Kórinn hóf tónleikana með nokkrum skemmtilegum þjóðlögum úr ýmsum áttum, en segja má að sænskur stíll hafi svifið yfir vötnum. Söngvaskáldið Bellman átti sex lög á tónleikunum, þrjú fyrir hlé og önnur þrjú eftir, en þar á milli höfðu rússnesku harmónikuleikararnir Juri og Vadim Fedorov farið á kostum og hrifu salinn með sér með frábærum tilþrifum.
Undir lokin skiptu kórmenn um gír og fóru yfir í íslensk sjómannalög þar sem tónleikagestir skemnmtu sér hið besta yfir lögum eins og Stjáni Blái og Suðurnesjamenn, ásamt því sem Steinn Erlingsson söng einsöng í frábærri útfærslu á Sprengisandi.
Þá má ekki gleyma Davíð Ólafssyni, bassasöngvara, sem söng einsöng í fimm lögum og sveik engan með frábærum söng eins og hans er von og vísa.
Gestir klöppuðu ákaft eftir síðasta lag og linnti ekki látum fyrr en kórinn hóf aftur upp raust sína.
Viðtökurnar voru framar vonum kórmanna og eru þeir jafnvel að velta fyrir sér að halda aukatónleika.
VF-myndir/Þorgils