Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Húsfyllir á þjóðháttakynningu
Sunnudagur 21. mars 2010 kl. 12:32

Húsfyllir á þjóðháttakynningu

Húsfyllir var á þjóðháttakynningu um æðarbúskap og refaveiðar. Valdimar Gíslason æðarbóndi á Mýrum í Dýrafirði lýsti þróun véla við hreinsun dúns og hvernig búskapurinn hefði þróast frá 1936 fram til dagsins í dag. Hann sagði jafnframt skemmtilegar sögur af viðureign manna við refi. Sigríður Hanna og faðir hennar Sigurður Eiríksson sögðu frá búskapnum í Norðurkoti í Sandgerði og viðureign þeirra við að halda köttum frá æðarvarpinu og síðar hvernig þau nýttu yrðlinga til að halda mávi í skefjum.


Ómar Smári Ármannsson göngugarpur sýndi myndir og lýsti hlöðnum refagildrum sem má sjá víða á Reykjanesskaga sjá - http://www.ferlir.is/?id=10912

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Þjóðháttakynningin var mjög fróðleg. Upp kom hugmynd um að stofnað yrði félag um æðarvarp á Suðurnesjum.


mynd ÓSA : Æðarbændurnir: Sigurður Eiríksson Norðurkoti, Valdimar Gíslason Mýrum og Páll og Sigríður Hanna Norðurkoti Sandgerði.