Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Húsfyllir á jólatónleikum í Keflavík
Mánudagur 15. desember 2008 kl. 23:55

Húsfyllir á jólatónleikum í Keflavík


Húsfyllir var á jólatónleikum í safnaðarheimili Keflavíkurkikjru í gærkvöldi. Fjórir kórar komu fram, Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Gospelkór Hjálpræðishersins og Kirkjukór Keflavíkur. Hinn landskunni tónlistarmaður, Sigurður Flosason lék í mörgum laga kvöldsins. Undirleikur var í höndum Arnórs Vilbergssonar, hins nýja organista Keflavíkurkirkju. Þá söng Jóhann Smári Sævarsson sem er nýkominn heim frá útlöndum. Hjálmar Árnason, kynnir kvöldsins sagði að það hefði verið gott að endurheimta þessa tvo syni Keflavíkur en Arnór var á Akureryri við störf undanfarin ár og Jóhann í Austuríki og víðar í Evrópu.
Það var jólaandi yfir vötnunum þetta kvöld og séra Skúli Ólafsson flutti stutta tölu í anda ástandsins og komandi jóla. Í lokin var hápunktur kvöldsins þegar allir kórarnir sungu saman með Jóhanni Smára og með undirleik Arnórs og Sigurðar. Aldeilis frábær flutningur og góð skemmtun.
Yfir 300 manns voru í safnaðarheimilinu þetta skemtilega kvöld sem var til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja en séra Skúli og Keflavíkurkirkja veita honum forstöðu.
Aðrir tónleikar til styrktar Velferðasjóði verða haldnir í Lava sal Bláa lónsins á fimmtudagskvöld.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Sigurður Flosason með saxafóninn og fjóra kóra í liði sínu. Að neðan má sjá Jóhann Smára þenja raddböndin.