Bygg
Bygg

Mannlíf

Húsfyllir á fyrirlestri í Íþróttaakademíunni
Miðvikudagur 7. febrúar 2007 kl. 17:18

Húsfyllir á fyrirlestri í Íþróttaakademíunni

Troðfullur salur af fólki hlýddi í gærkvöldi á fyrirlestur Sölva Fannars Viðarssonar einkaþjálfara í Íþróttaakademíunni. Fyrirlesturinn var um líkamsrækt, en Sölvi Fannar hefur haft mikla reynslu af því að koma fólki í form og m.a. hjálpaði hann Gauja litla að missa rúm 58 kíló á 7 mánuðum fyrir 10 árum síðan.

 

Á fyrirlestrinum talaði Sölvi m.a. um mikilvægi þess að fólk setji sér markmið í líkamsrækt og trúi því að það geti náð því. Einnig lagði hann áherslu á að þeir sem vilji léttast og brenna fitu gæti þess að æfa á réttu erfiðleikastigi og borði MEIRA.
 
Fyrirlesturinn var í boði Íþróttaakademíunnar.

 

Af vef Íþróttaakademíunnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn