Húsanes styrkir Björgina
Húsanes kom færandi hendi í Björgina, athvarf fyrir fólk með geðraskanir, á dögunum og veittu Björginni rausnarlega peningagjöf sem Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir, forstöðmaður athvarfsins, tók á móti.
Tildrög peningagjafarinnar voru þau að á kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ á fimmtudaginn síðastliðinn voru félagar og starfsmenn í Björginni með kynningu á þeirri starfsemi sem þar fer fram. Félagarnir í Húsanesi voru yfir sig hrifnir af þessari starfsemi og sögðust ekki geta látið svo mikilvægt úrræði fram hjá sér fara og ákváðu því að styrkja við bakið á Björginni.