Hugsar og syndir á ensku
Jóna Helena stundar nám í New Mexico
Jóna Helena er 21 árs gömul gömul Keflavíkurmær sem hefur dvalið meira og minna í sundlauginni frá sex ára aldri. Með ÍRB liðinu hefur Jóna Helena orðið margfaldur Íslands- og Aldursflokkameistari og hefur hún lengi verið í fremstu röð íslenskra sundmanna. Einnig hefur Jóna verið liðsmaður í landsliði og unglingalandsliði Íslands og var hún m.a. kjörin Sundmaður ÍRB árið 2010. Síðastliðið haust tók Jóna þá ákvörðun að flytja búferlum og hefja nám við New Mexico state hákólann í Bandaríkjunum.
Eins og nafnið gefur til kynna er skólinn í New Mexico fylki en Jóna segist ekki hafa vitað mikið um fylkið, nema að þar væri mjög þurrt loft og heitt í veðri. Það reyndist svo vera satt, enda hitinn gríðarlegur þegar hún kom þangað í ágúst í fyrra. Hún hafði verið í viðræðum við nokkra skóla en leist best á New Mexico state þar sem hann leit vel út. Sundlið skólans er gott og með afbragðs aðstöðu. „Þegar Erla Dögg (Haraldsdóttir) og Árni Már (Árnason) fóru í skóla í Bandaríkjunum varð þetta enn meira spennandi fyrir mig, og svo fór besti vinur minn og liðsfélagi til margra ára, Davíð Hildiberg í skóla í Bandaríkjunum. Þau töluðu öll um hvað þetta var skemmtileg lífsreynsla og alveg frábært tækifæri fyrir mann. Og þá var ég alveg staðráðin í því að þetta væri eitthvað sem mig langaði að upplifa og ákvað að láta draum minn rætast,“ sagði Jóna í samtali við Víkurfréttir.
Að sögn Jónu er bærinn Las Cruces sem hún býr í frekar rólegur en íbúafjöldinn er þó 97.000 manns. „Fólkið hér er mjög vinalegt og finnst alltaf jafn áhugavert þegar ég segi að ég sé frá Íslandi,“ segir Jóna. Það kemst fátt annað að hjá Jónu en sund og lærdómur. Þegar hún er ekki í lauginni er hún yfirleitt að sinna heimalærdómi. Hún gefur sér þó tíma til þess að kíkja á aðra íþróttaviðburði sem eru vinsælir í skólanum. Búðarferðir og bíó með vinunum eru líka á dagskránni en Jóna hefur eignast góða félaga á meðan á dvöl hennar hefur staðið. Í skólanum eru um 19.000 nemendur. Í háskólasundi snýst allt saman mjög mikið um liðsheild að sögn Jónu og gerir liðið margt skemmtilegt saman.
Sjálfboðavinna á byssusýningu
Allir íþróttamenn í skólanum þurfa að skila 15 klukkutímum í sjálfboðavinnu á hverju ári. „Einn sunnudag aðstoðuðum við sundstelpurnar í hjólakeppni, þar sem við sátum í eyðimörkinni í 5 klukkutíma, til að hvetja fólk áfram þegar þau hjóluðu framhjá okkur. Skemmtilegasta sjálfboðaverkefnið hingað til var þegar við vorum að selja happadrættismiða á byssusýningu. Þar fékk ég að halda á alvöru byssu, frekar spennandi fannst mér,“ segir Jóna.
Skólinn gengur vel hjá Jónu en hún stundar nám á tölvunarfræðibraut og líkar það vel. Það vefst ekki fyrir henni að læra á ensku en hún segist hafa vanist því fljótlega að hugsa á ensku. Hún viðurkennir þó að fyrstu vikurnar hafi hún verið frekar feimin við að tala en nú sé hún mun öruggari með enskukunnáttu sína. Margir velta því fyrir sér hvort það sé ekki erfitt að vera svona langt frá fjölskyldu og vinum. „Svarið er auðvitað jú, það getur verið mjög erfitt stundum. En þökk sé góðum samskiptamiðlum eins og skype og facebook, þá verður fjarlægðin styttri.“
Hitinn niður í 5 gráður!
Í liðinu eru 22 sundstelpur sem æfa saman. Til afnota er (50 yarda) 45 metra útilaug til að æfa í sem er reyndar skipt upp í tvær 22 metra laugar. „Við höfum annan endann alveg útaf fyrir okkur, 10 brautir. Sem er alls ekki slæmt, alltaf bara tvær á braut, sem er mjög þægilegt eins og flestir sundmenn vita. Einnig er skólinn með sex brauta, 22 metra innilaug sem við syndum í á morgnana þegar það er mjög kalt í veðri. „Á morgnana hér í New Mexico er sko alls ekki heitt, hitinn hefur farið allt niður í 5 gráður!“
Næstu fjögur árin dvelur Jóna í Bandaríkjunum en hún saknar óneitanlega heimahaganna. „Það sem ég sakna mest að heiman er fjölskyldan, vinirnir og kisan mín. Svo sakna ég líka þess að geta farið í heita pottinn eftir sundæfingar og slakað á. Íslenski maturinn er líka alltaf bestur,“ en Jóna nýtti tækifærið þegar hún kom heim um jólin og borðaði vel af skyri og kókómjólk. Ævintýrið er rétt að byrja og Jóna segir þessa reynslu vera afar skemmtilega. „Mér líður mjög vel hérna, hef eignast góðar vinkonur og allt er hreinlega frábært.“
Jóna vígaleg með þennan líka svakalega hólk.
Ásamt vinkonunum á amerískum fótboltaleik.
Sundliðið saman komið. Eins og sjá má er aðstaðan glæsileg.