Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fimmtudagur 11. janúar 2001 kl. 10:32

Húðslípun er bæði fyrir karla og konur

Hulda Pétursdóttir hefur rekið snyrtistofu Sjávargötu 14 í Njarðvíkunum um 16 ára skeið. Þeir sem til þekkja vita að þangað er gott að koma; góð þjónusta og þægilegt andrúmsloft. Hulda og samstarfskonur hennar, María Rós Skúladóttir snyrtifræðingur og Svala B. Reynisdóttir nemi, fylgjast vel með straumum og stefnum en ein nýjasta húðmeðferðin í dag er Pepita Ultrapeel húðslípun.

Kristallar sem slípa húðina
Í meðferðinni eru notaðir örfínir, muldir kristallar sem strokið er eftir húðinni. Kristallarnir koma úr stauk á tækinu sem notað er við húðslípunina og þeir sogast svo jafnharðan frá húðinni aftur þannig að alltaf eru hreinir kristallar á húðinni. Kristallarnir slípa húðina og fjarlægja dauðar húðfrumur þannig að húðin endurnýjast örar en ella og verður þannig frískari. Þetta er áhrifarík húðfegrun sem vinnur einnig á fínum hrukkum, grófri húð og ýmis konar húðvandamálum.
Að sögn Huldu er meðhöndlunin mismunandi eftir því hvað er verið að vinna í húðinni. „Ef verið er að meðhöndla fínar línur og ójafna húð þarf að koma ört. Sömuleiðis þarf að koma nokkuð ört þegar verið er að meðhöndla bólur.“

Húðin verður slétt og fín
Að sögn Huldu starfar húðin betur við húðslípun og tekur þá betur við kremi og öðru sem á hana er borið. „Við bjóðum andlitsbað í kjölfar slípunar og erum þá búnar að velja efni í samræmi við húð hvers og eins og endum svo á maska“, segir Hulda og leggur áherslu á að húðslípun sé ekki síður fyrir karlmenn þótt konur hafi aðallega komið hingað til.
„Húðslípun og andlitsbað tekur u.þ.b. hálfan annan tíma en einnig er hægt að taka eingöngu maska eftir húðslípun. Húðin er slétt og fín strax á eftir og ekkert eftir sig né flekkótt. Vika til tíu dagar líða á milli skipta í þéttri meðferð en annars lengri tími. Einnig er hægt að koma bara endrum og sinnum til að hressa aðeins upp á húðina.“
Á Snyrtistofu Huldu er áralöng reynsla af meðferð húðar og mikið lagt upp úr að velja krem, ampúlu og jafnvel lúxusmaska eftir því hvað hentar hverri húðgerð. Að mati Huldu er tilkoma húðslípunarinnar ein mesta nýungin og framþróunin sem orðið hefur í umhirðu húðar fyrr og síðar.

Andlitsböðin vinsælust
Hulda selur húðvörur frá Académie og Gatineau, sem hvort tveggja eru frönsk merki og eru þekkt fyrir mikil gæði. „Við erum einmitt að fara á námskeið hjá Gatineau í næstu viku en bæði Gatineau og Académie sjá okkur fyrir alls kyns nýungum, s.s. meðferðum og möskum.“
Á Snyrtistofu Huldu er boðið upp á vaxmeðferðir, andlitsmeðferðir, fót- og handsnyrtingu og litanir en að sögn Huldu eru andlitsböðin vinsælust. „Karlmenn á öllum aldri koma mikið til mín í fótsnyrtingu og húðhreinsun en það hefur tvímælalaust aukist að þeir venji komur sínar hingað“, segir Hulda.

Góður árangur
Þess ber að geta að Hulda býður líka upp á meðferð sem kallast Comfort body and face lifting. Fimm meðferðir eru í boði, þ.e. spanstraumlyfting og styrking líkamans, lyfting og styrking fyrir andlit og háls með örstraumi, íþróttameiðsla- og gigtarmeðferð, húðþéttingarmeðferð sem nýtir einnig bylgjur sem vinna gegn appelsínuhúð. Að sögn Huldu er hægt að laga meðferðirnar að þörfum hvers með handstillingu en einnig er gott úrval af fyrirfram stilltum meðferðum.
„Vinsælasta meðferðin tekur um 20 mínútur og ráðlagt er að fara í 2-3 tíma á viku. Mál eru tekin af viðskiptavini á þeim svæðum sem unnið skal á áður en meðferð hefst í fyrsta sinn. Flestir merkja árangur eftir fyrsta skiptið en að sjálfsögðu er hann mjög einstaklingsbundinn“, segir Hulda.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024