HSS
HSS

Mannlíf

Hringdans á sólstöðum á Garðskaga
Föstudagur 13. júní 2025 kl. 06:15

Hringdans á sólstöðum á Garðskaga

Á sólstöðum verður sérstök dagskrá á Garðskaga.  Þá verður sumrinu fagnað með hefðbundinni rímnatónlist, vikivaka og öðrum þjóðdönsum.

Þjóðdansafélag Reykjavíkur mun leiða heimafólk og gesti í hefðbundnum hringdansi. Öllum viðstöddum gefst tækifæri á að læra sporin og taka þátt í dansinum. Að auki verður dagskrá þar sem Rímnadanshljómsveit S.L.Á.T.U.R. flytur rafræna danstónlist með nýstárlegum hljóðfærum.

Garðskagi er einstök náttúruperla, með mikið útsýni, fuglalíf og hafið umlykjandi. Hringdans var venjulega utandyra fyrr á öldum og fólk hélt á sér hita með því að stíga danssporin. Dansinn verður úti, þannig að þátttakendur þurfa að klæða sig eftir veðri.  Það er tilvalið að heimsækja Garðskaga á sumarsólstöðum, þennan lengsta dag ársins, njóta náttúrunnar og kynnast þjóðlegri menningu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Raftónlistarmaðurinn og Garðbúinn Áki Ásgeirsson stýrir verkefninu og hefur um árabil rannsakað hefðbundinn íslenskan rímnakveðskap. Nú hefur hann sett saman nýja rímnadanshljómsveit sem flytur nýstárlega raftónlist við hefðbundinn hringdans. Þessi hljómsveit hefur komið fram á tónlistarhátíðinni Myrkum músíkdögum, barnatónlistarhátíðinni BIG BANG í Hörpu og einnig í Norræna húsinu.

Nú er tækifærið að endurvekja gamlan hringdans í nýstárlegum búningi.

Dansinn fer fram undir berum himni í sumarnóttinni við Garðskagavita þann 21. júni.

Viðburðurinn er opinn öllum og ókeypis þátttaka.