Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Hreyfing til fyrirmyndar
Fimmtudagur 14. júní 2012 kl. 11:14

Hreyfing til fyrirmyndar

23. SJÓVÁ KVENNAHLAUP ÍSÍ Á LAUGARDAGINN KL. 11 Í REYKJANESBÆ



Kæru Suðurnesjakonur!

Lykillinn að vellíðan er að hugsa á heilbrigðan hátt um sjálfan sig og aðra. Heilsa er allt í senn andleg, líkamleg og félagsleg. Konur eru því hvattar til að fagna því að þær eru eins ólíkar og þær eru margar og njóta þess fjölþætta ávinnings sem fylgir heilbrigðum lífsháttum svo sem jákvæðu hugarfari, daglegri hreyfingu og hollum matarvenjum.
Mikil ánægja og þátttaka hefur verið í Kvennahlaupinu á undanförnum árum.

Í Kvennahlaupinu eiga mæðgur, systur, mömmur, ömmur, frænkur og vinkonur á öllum aldri notalega stund saman. Hver og ein tekur þátt á sinn hátt og á sínum hraða, margar labba, aðrar skokka, sumar skokka og labba til skiptis og svo hlaupa líka einhverjar allan tímann.

Hlaupið verður frá ýmsum stöðum á Suðurnesjum og í Reykjanesbæ verður hlaupið frá Húsinu okkar (K-húsinu við fótboltavöllinn) og er valið um 3 vegalengdir; 2, 4 eða 7 km. Vegalengdin sem hver og ein kona velur er ekki aðalmálið heldur að vera með og hafa gaman af.

Gaman væri að sem flestar konur verði með og ef þú sérð þér ekki fært um að labba, skokka eða hlaupa, þá væri FRÁBÆRT ef að þú myndir fara út í dyr heima hjá þér og HVETJA HRAUSTU KONURNAR þegar þær hlaupa framhjá og jafnvel að hafa hressa tónlist í gangi. Í fyrra myndaðist mikil og góð stemming, sérstaklega á Holtsgötunni.

Þær sem verða út úr bænum þennan dag, geta hlaupið hvar sem er á landinu eða erlendis. Aðalmálið er að hreyfa sig og vera með.

Best er að skrá sig á fimmtudag og föstudag. Skráning fyrir Reykjanesbæ fer fram kl. 17-19 í Húsinu okkar, Hringbraut 108. Þátttökugjald er 1250 kr. og innifalið í því er flottur rauður bolur, verðlaunapeningur, Egils Kristall og frítt er í sund á eftir í Vatnaveröld.

Á laugardaginn kl.10-10.55 geta þær skráð sig sem ekki komast í forskráninguna.
Hlakka til að sjá sem flestar konur í hlaupinu á laugardaginn kl. 11.

Með hlaupakveðju,

Guðbjörg Jónsdóttir,
verkefnisstjóri SJÓVÁ Kvennahlaups ÍSÍ í Reykjanesbæ 2012

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024