Föstudagur 11. júlí 2003 kl. 13:08
Hressir krakkar í unglingavinnunni

Sumarið er svo sannarlega tíminn þegar íbúar hinna ýmsu bæjarfélaga verða varir við unglinga skreyta garða, sópa götur, þökuleggja og dytta að ýmsu til að fegra bæjarfélagið. Í Reykjanesbæ eru nú um 420 unglingar að vinna í Vinnuskóla bæjarins og að sögn Ragnars Arnar Péturssonar yfirmanns Vinnuskólans hefur starfið gengið vel í sumar. „Helstu framkvæmdir sem unnið hefur verið að eru tyrfingar víða um bæjarfélagið, sláttur, rakstur og almenn hverfahreinsun. Við höfum verið heppin með veður frá því við byrjuðum og vonandi verður það ágætt þar til síðasti dagur vinnuskólans verður 8. ágúst,“ sagði Ragnar Örn í samtali við Víkurfréttir.
VF-ljósmynd/JKK: Á myndinni má sjá hóp vinnuskólakrakka sem voru að vinnu við Hringbrautina í Keflavík.