Hressir krakkar frá Tjarnarseli í víkingaleik
Um daginn kíktu elstu krakkarnir á leikskólanum Tajrnarseli út á Fitjar til að skoða víkingaskipið Íslending, en þetta var síðasta vettvangsferð vetrarins.
Krakkarnir skemmtu sér konunglega og veltu fyrir sér áleitnum spurningum eins og hvernig skipið hafi eiginlega komist inn í húsið! Þá fengu þau að kíkja upp í skipið og var ekki laust við að maður sæi örla á víkingatöktum þar sem menn stóðu allvígalegir í stafni.
Daginn eftir héldu þau lokahóf sitt í Kirkjulundi og var gestum boðið upp á fjölbreytta dagskrá að hætti leikskólans. Auk þess að syngja og sprella með foreldrum lásu nemendur upphátt fyrir gesti, en elstu krakkarnir fengu kennslu í lestri og skrift í vatue sem þau munu eflaust búa vel að þegar þau byrja í grunnskóla næsta haust. Eftir útskriftarathöfn var svo boðið upp á kaffi og með því.