Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Hreinsum Ísland átak Landverndar og Bláa hersins
Miðvikudagur 4. apríl 2018 kl. 06:00

Hreinsum Ísland átak Landverndar og Bláa hersins

- Átakið hefst á Degi umhverfisins 25. apríl

Miðvikudagurinn 25. apríl, er er dagur umhverfisins og þá hefst átak Landverndar: Hreinsum Ísland. Dagana 25. apríl - 6. maí vekja Landvernd og Blái herinn athygli á þeim hættum sem fylgja plastmengun í hafi. Norðurlöndin taka höndum saman annað árið í röð, og skipuleggja samstilltar strandhreinsanir þann 5. maí og munu Landvernd og Blái herinn standa fyrir hreinsun á Reykjanesi.

Almenningur er hvattur til þess að taka þátt og skipuleggja sína eigin hreinsun en góð ráð og leiðbeiningar má finna á síðu átaksins og hægt er að skrá sig hér. Göngufólk og skokkarar er einnig hvatt til þess að skrá sitt „plokk“ á hreinsumisland.is og verða allar hreinsanir birtar á Íslandskorti verkefnisins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Af hverju?
Landið okkar er hafi umkringt og tengir það okkur við önnur lönd. Það mótar landið okkar og hefur gríðarlega mikil áhrif á veður og loftslag. Hafið gerir jörðina lífvænlega og hýsir og styður við vistkerfi um allan heim. Hafið og tilvera manna er bundin órjúfanlegum böndum og því mikilvægt að huga að heilbrigði hafsins. Fyrir fiskiþjóð eins og Ísland er hafið sérstaklega mikilvægt. Við höfum nýtt auðlindir hafsins í þúsund ár, nú er kominn tími til að við gefum eitthvað til baka og hreinsum strandlengjur Íslands og komum í veg fyrir að meira plast lendi í sjónum.

Plastmengun í hafi er ein stærsta áskorun nútímans í umhverfismálum. Á ári hverju enda um átta milljón tonn af plasti í hafi og samkvæmt tölum frá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna falla um 80% þess frá landi en um 20% frá starfsemi á hafi. Plastið eyðist ekki heldur brotnar niður í örplast sem sogar að sér eiturefni í sjónum. Plast getur vafist utan um dýr og heft hreyfingar þeirra og kyrkt en einnig geta eiturefni í plastinu, eða sem berast með plastinu, skaðað dýrin. Talið er að um milljón sjófuglar og 100 þúsund sjávarspendýr og skjaldbökur drepist árlega vegna þess að þau festast í eða éta plast. Risastórir plastflákar finnast í heimshöfunum og plast safnast þar saman vegna hafstrauma.

Plastið í sjónum er því mikið til hlutir eins og einnota umbúðir, plasthnífapör, plastflöskur, plastpokar, föt, sogrör, tannburstar og leikföng. Þessir hlutir brotna svo niður í smærri agnir sem kallast örplast og skapa enn meiri hættu fyrir lífríkið.
Hér áður fyrr var oft sagt „lengi tekur sjórinn við“ en nú er jafnvel talið að það verði meira af plasti en fiski í sjónum árið 2050.

Hvernig getur fólk tekið þátt?
Við hvetjum alla til að leggja hönd á plóg og taka þátt í að minnka plastmengun. Þetta er hægt að gera með því að nota minna plast, kaupa minna og auka endurvinnslu. Fólk getur tekið þátt í skipulögðum strandhreinsunum eða skipulagt sína eigin hreinsun. Nánari upplýsingar má finna á síðunni hreinsumisland.is og þar er hægt að skrá sig til leiks.

Viðburðir ársins:
Norræn strandhreinsun 5. maí
Hreinsað er samtímis á öllum Norðurlöndum og munu Landvernd og Blái herinn standa fyrir hreinsun á Reykjanesi en landsmenn eru hvattir til að skipuleggja sína eigin hreinsun á þessum tíma. Skráning hér.

Alheimshreinsun 15. september (World Cleanup Day)
Þennan dag munu tugmilljónir sjálfboðaliða í 150 löndum taka höndum saman og hreinsa umhverfi sitt um allan heim. Við á Íslandi ætlum ekki að missa af þessu og hvetjum alla til að leggja hönd á plóg í vikunni 10. - 16. september 2018.