HSS
HSS

Mannlíf

Miðvikudagur 15. mars 2000 kl. 16:27

Hörður Torfa með tónleika í Keflavík

Hörður Torfason heldur tónleika í Frumleikhúsinu í Keflavík laugardaginn 18. mars n.k. og sunnudaginn 19. mars geta Grindvíkingar og aðrir nærsveitamenn hlýtt á tónlist hans í Kvennó. Hörður heldur einnig eina tónleika í Íslensku óperunni í Reykjavík föstudaginn 17. mars en allir tónleikarnir hefjast kl. 21. Hörður Torfa segir að tilefnið að tónleikunum sé 30 ára afmæli fyrstu plötunnar sem hann gaf út. Hún gengur vanalegu undir nafninu „Bláa platan“ en heitir með réttu „Hörður Torfason syngur eigin lög“. „Ég fer yfir þessa plötu á tónleikunum en á henni eru 12 lög, t.d. Guðjón, Ég leita blárra blóma, Tryggð og Útburðarvæl, en ég mun einnig taka nýtt efni í bland“, segir Hörður og það er ljóst að tónleikagestir eiga von á sannkallaðri tónleika veislu. Hörður hélt einnig upp á tvítugsafmæli Bláu plötunnar og hyggst halda þeim sið áfram að fagna útgáfu hennar á tíu ára fresti. Platan er orðin klassísk og Hörður segir að hún sé komin hátt í 10 þúsund eintök í sölu. „Það þótti óvenjulegt á sínum tíma að einn maður kæmi fram og syngi eigin lög og texta. Ég lít á mig sem söngvaskáld og minn tilgangur með þessu er að ég er leikari“, segir Hörður. Hann útskrifaðist sem leikari árið 1970 og hefur uppfrá því farið eina til tvær hringferðir um Ísland að jafnaði á ári hverju. Fyrir síðustu jól gaf Hörður út plötuna „Grímur“ en hann segist ekki hafa geta fylgt henni nægilega vel eftir þar sem hann er búsettur erlendis.
Bílakjarninn
Bílakjarninn