Hörður Torfa á kaffihúsakvöldi
				
				Næsta kaffihúsakvöld Leikfélags Keflavíkur verður sunnudaginn 11. mars kl. 20.30 í Frumleikhúsinu.  
Fram koma Kristín Kristjánsdóttir og Hermann Helgason með leikþátt, Magnús Sveinn Jónsson les frumsamin ljóð og trúbadorinn Hörður Torfason kemur fram í boði nokkurra aðdáenda. Gísli B. Gunnarsson er kynnir kvöldsins. Aðgangur er ókeypis en kaffi verður selt á staðnum.
Íbúar eru hvattir til að koma og njóta og þeir sem vilja koma fram á næsta kvöldi eru beðnir um að skrá sig hjá menningarfulltrúa í síma 421-4160.