HOLTASKÓLI:
Ótrúlegt hve miklu hefur verið áorkaðHoltaskóli tók á þriðjudagsmorgun í fyrsta sinn á móti nemendum yngri en 12 ára. Skólinn er einsetinn þrátt fyrir að ekki sé framkvæmdum að fullu lokið. Nemendur í ár eru 406 talsins, kennarar 35, og nemendur í fyrsta bekk 49.Jónína Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri, sagði Holtaskóla í raun heppilega hannaðan fyrir nýtt hlutverk. „Holtaskóli hefur stundum verið stærri en þörf var á og er það heppilegt á þessum tímamótum. Enn er þó ýmsu ólokið og vantar t.d. heilmikinn stofnbúnað fyrir yngri nemendur en eftir stendur að ótrúlegt er hve miklu hefur verið áorkað í sumar á stuttum tíma til breytingar á skólanum en ýmsu er þó ólokið enn og vantar t.d stofnbúnað fyrir yngri nemendur. Skipulag hússins veldur því að hægt er að aldurskipta nemendum í álmum skólans og byggðir hafa verið 2 nýir útgangar fyrir yngstu nemendurna, beint út á skólalóð þeirra. Þá er í skólanum mjög góð aðstaða til tónlistarkennslu.“Hvernig hefur gengið að fá kennara til starfa?„Skólinn er að fullu mannaðar og eru nýir kennarar og leiðbeinendur sjö talsins en auk þess kemur Álfheiður K. Jónsdóttir inn aftur eftir hlé. Nýju kennararnir eru Bryndís Björk Guðmundsdóttir, Fannar Ólafsson, Henning Magnússon, Hafdís Friðriksdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir, Lóa Geirsdóttir og Sigfríður Sigurðardóttir, Vigdís Jóhannsdóttir.“Finnur þú fyrir viðhorfsbreytingu gagnvart menntamálum hjá bæjaryfirvöldum og bæjarbúum?„Mér finnst áhugi fólks hafi aukist og bæjaryfirvöld hafa sýnt metnað í gera aðbúnað skóla vel úr garði. Tilkoma Heiðarskóla hefur leitt til breyttra viðmiða í skólamálum. Nú eru starfandi 4 sams konar skólar í Reykjanesbæ. Það veldur samanburði á rekstri og árangri hvers skóla fyrir sig, nokkuð sem ég tel vera af hinu góða. Starfsfólkið hér í Holtaskóla er mjög bjartsýnt og tilbúið til að takast á við ný verkefni.“