HSS
HSS

Mannlíf

Hollari bolludagur
Sunnudagur 19. febrúar 2012 kl. 13:57

Hollari bolludagur

Bolludagur er framundan og viljum við gjarnan njóta þess að gæða okkur á gómsætum bollum í tilefni dagsins. Fyrir ykkur sem viljið halda ykkur við heilsusamlegt mataræði þá er alveg hægt að njóta þess og notast við örlítið hollara hráefni við baksturinn. Læt því fylgja með í þetta sinn afar góða uppskrift að hollari útgáfu af bollum en hægt er að nota sykurlausa sultu með, bræða lífrænt súkkulaði og smyrja ofan á ásamt rjóma. Fyrir þá sem vilja sleppa rjómanum og hafa þetta í léttari kantinum þá fæst sojarjómi og rísrjómi í sprautuformi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Vatnsdeigsbollur
2 dl vatn
1 msk xylitol sykur
80 gr kókósolía
100 gr fínt spelt
1 tsk vínsteinslyftiduft
2 egg
Smá salt

-má nota agave síróp fyrir þá sem vilja frekar
-sjóða vatn + olíu + sykur saman
-taka af hellu, hræra spelti og lyftidufti saman út í
-setja í skál og hræra saman
-kæla deigið
-1 egg þeytt saman
-næsta egg hrært út í og öllu blandað saman
-þetta látið aðeins stífna, 1 msk af deigi sett á bökunarpappír
-ofn hitaður í 200°C, baka í 20-25 mín
-látið kólna áður en tekið af plötu

Heilsukveðja,
Ásdís grasalæknir.