Hlynur Þór hefur gefið út lagið Förumaður
Tónlistarlífið á Suðurnesjum er að springa út þessa dagana. Fjöldi tónlistarmanna hefur nýtt undanfarna mánuði til að semja nýtt efni og láta verða af útgáfu þess. Hlynur Þór Valsson er einn þeirra en hann hefur gefið út lagið Förumaður sem er það fyrsta sem kemur út undir hans eigin nafni.
Förumaður er amerískt eða írskt þjóðlag en fólki ber ekki saman um uppruna þess. Á frummálinu heitir lagið Moonshiner en Hlynur Þór hefur samið eigin texta við lagið. Stemmningin í laginu er saga einfarans sem brennt hefur allar brýr að baki sér og horfir inn í sólarlag lífs síns.
Hlynur Þór, sem er keflvískur Sandgerðingur, hefur verið tengdur tónlist allt frá unglingsárum og komið víða við. Hann hefur fengist við pönk og þjóðlagatónlist og margt þar á milli, nefna má LF Lóðarí, Sex Division, Klassart, Rolf Hausbentner Band og Matta Óla sem listamenn sem hafa notið liðsinnis Hlyns í upptökum og tónsmíðum í gegnum tíðina. Hann er annar helmingurinn af trúbadoradúettinum Hobbitunum (sem síðar varð hljómsveitin Föruneytið) sem glatt hefur Suðurnesjamenn sem aðra landsmenn við allskonar tilefni til fjölda ára.
Hlynur Þór var virkur félagi í AFTAN festival hópnum sem stóð að tónleikum á Suðurnesjum og hefur staðið á bak við tónlistarviðburðinn Snúran sem haldin hefur verið reglulega í Sandgerði. Hlynur Þór situr í stjórn Jazzfjelags Suðurnesjabæjar.
Förumaður var tekið upp í Smástirni undir stjórn Smára Guðmundssonar sem jafnframt leikur á gítara og bassa. Hlynur Þór sér um söng og kassagítarleik en Sigurgeir Sigmundsson dregur hólkinn yfir fetilgítar, trommuleikurinn kemur frá Halldóri Lárussyni, Ari Bragi Kárason blæs í trompet og Stefán Örn Gunnlaugsson sér um bakraddir og hljóðblöndun á laginu. Lokaáferðin var svo sett með masteringu frá Sigurdóri Guðmundssyni í Skonrokk Studios.
Hér að neðan er tengill á lagið Förumaður á tónlistarveitunni Spotify