Hlutu Nótuverðlaunin fyrir framúrskarandi flutning
Rokksamspil tónlistarskóla Garðs fékk Nótuverðlaun fyrir framúrskarandi tónlistarflutning í opnum flokki á lokahátíð Nótunnar, uppskeruhátíð tónlistarskóla 2018. Lokaathöfnin fór fram í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 4.mars.
Einnig var hljómsveitin valin úr hópi verðlaunahafa til að endurflytja lagið sitt á lokahátíðinni ásamt tveimur öðrum atriðum. Verðlaunin eru mikill heiður fyrir skólann en þeir Alexander, Helgi, Hólmar Ingi og Magnús Fannar frá tónlistarskólanum í Garði komu fram á Nótunni.