Hljómsveitin Úlpa í Reykjanesbæ

Einnig kemur fram hljómsveitin Koja sem spilar framsækið rokk. Hún á einnig rætur að rekja í Bítlabæinn.
Úlpa gaf nýverið út sína aðra breiðskífu, „Attempted flight by winged men,“ og fæst hún í öllum helstu plötuverslunum. Úlpa flytur framsækna tónlist sem myndi helst flokkast sem „Indie.“ Hljómsveitin hefur meðal annars hitað upp fyrir Trans Am, Stephen Malkmus, Blonde Redhead og spilað í eftirpartíi Mogwai.
Tónleikarnir á Paddy´s hefjast um kl. 21:00 annað kvöld (miðvikudag). 18 ára aldurstakmark og að sjálfsögðu FRÍTT INN.