Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Hljómsveitin Ofris kemur saman á ný
Fimmtudagur 31. ágúst 2017 kl. 06:00

Hljómsveitin Ofris kemur saman á ný

-„Erum allir í fínu spilaformi,“ Helgi Víkingsson trommuleikari Ofris

Hjómsveitin Ofris er eitt þeirra tónlistaratriða sem kemur fram á tónleikunum „Heima í gamla bænum“ á Ljósanótt. Hljómsveitin kemur fram á tónleikum sem fara fram í Rokksafni Rúnars Júlíussonar ásamt hljómsveitinni Pandóru. Hljómsveitina skipa þeir Þröstur Jóhannesson texta- og lagahöfundur, söngvari og gítarleikari, Magnús Þór Einarsson bassaleikari, Helgi Víkingsson trommuleikari, Kristján Kristmannsson hljómborðsleikari og saxófónleikari og Guðmundur Karl Brynjarsson söngvari og gítarleikari.

Hjómsveitin hefur ekki komið saman í um 30 ár. Ofris er hljómveit sem átti stóran aðdáendahóp á árum áður á Suðurnesjum og víðar. Hljómsveitin var stofnuð árið 1983 og starfaði til ársins 1988. Ofris var fyrst og fremst tónleikasveit sem flutti eigin lagasmíðar eftir Þröst Jóhannesson, texta- og lagahöfund. Sveitin var dugleg að koma fram á tónleikum, bæði á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hjómsveitin spratt upp úr skólahljómsveitinni „Trassarnir“ sem æfði og spilaði nokkrum sinnum í Holtaskóla í Keflavík og kom fram á skólaskemmtunum í Stapa. Meðlimir Trassanna voru Þröstur Jóhannesson söngvari og gítarleikari, Magnús Þór Einarsson bassaleikari, Helgi Víkingsson trommuleikari, Jón Helgason gítarleikari og Júlíus Friðriksson gítar- og bassaleikari.

Í upphafi var Ofris nýbylgjusveit en tónlist hennar þróaðist með tímanum og varð poppaðri með tímanum og jafnvel með djassívafi á köflum. Sveitin keppti í Músíktilraunum Tónabæjar 1985 en komust ekki í úrslitakeppnina. Meðlimir hennar þá voru þá Þröstur Jóhannesson söngvari og gítarleikari, Magnús Þór Einarsson bassaleikari og Helgi Víkingsson trommuleikari. Kristján Kristmannsson hljómborðsleikari og saxófónleikari bættist í hópinn 1986 og tók sveitin aftur þátt í músiktilraunum, og hafnaði þá í 3 sæti. Guðmundur Karl Brynjarsson gítarleikari og söngvari bættist í hljómsveitina á svipuðum tíma.

Sveitin átti sér hliðarútgáfur sem spilaði á böllum í hinum ýmsu félagsheimilum og ballstöðum á Suðurnesjum. Nöfn þeirra sveita voru hljómsveitin „Ó“, hljómsveitin „Íslensk glíma“ með Guðmund Karl sem söngvara og „Joe thunderbird and the pajamas“ með Hermann Karlsson sem söngvara.

Ofris gaf út plötuna „Skjól í skugga“ sem kom út vorið 1988. Hún var tekin upp í hljóðverinu Hljóðakletti sem var í eigu Magnúsar Guðmundssonar „Þeysara“ sem einnig var útgefandi. Platan er fyrir margt áhugaverð en um er að ræða eina síðustu pressuðu vínilplötu síðustu aldar þar sem geisladiskar tóku öll völd um svipaðan tíma. Platan er fyrir löngu ófáanleg.

„Við komum þar fram ásamt Hljómsveitinni Pandóru sem er að koma saman eftir 27 ár, þannig að þetta er nokkuð sérstakur viðburður. Magnús Einarsson bassaleikari er meðlimur í báðum þessum hljómsveitum. Hann er búsettur í Bandaríkjunum og það verður gaman að hitta hann eftir allan þennan tíma. Við höfum allir verið að fást við ýmis konar tónlistarverkefni á sitt hvorum vígstöðvunum frá því að að Ofris tók sér hlé og erum í fínu spilaformi,“ segir Helgi Víkingsson, trommuleikari hljómsveitarinnar.

„Ég er í báðum böndunum og spila því með þeim báðum. Ég er búinn að spila meira og minna síðan þessar hljómsveitir fóru í pásu þannig ég er í ágætri æfingu. Ég hef verið að spila með nokkrum hljómsveitum í Bandaríkjunum þar sem ég hef búið síðustu ár. Ég ber miklar tilfinningar til beggja hljómsveitanna. Ég er náttúrulega einn af stofnendum Ofris og ber því miklar tilfinningar til hennar og var í henni frá upphafi þangað til að hún tók sér hlé. Ég hef líka miklar tilfinningar til Pandóru og það var mjög gaman að hitta strákana aftur,“ segir Magnús Þór Einarsson, bassaleikari.