Aðstandendur Hljómskálans.
Hljómskálinn kemur út á CD og DVD
Það má með sanni segja að Hljómskálinn, sjónvarpsþáttur þeirra Sigtryggs Baldurssonar, Braga Valdimars Skúlasonar og Keflvíkingsins Guðmundar Kristins Jónssonar hafi slegið í gegn. Þeir félagar hafa lagt á það ríka áherslu strax frá upphafi framleiðslu þáttanna að Hljómskálinn væri vettvangur fyrir nýja íslenska tónlist og sá metnaður hefur skilað sér vel.
Hljómskálinn er nú að koma út á CD og DVD. Á þessari útgáfu, sem kemur í verslanir á morgun, er að finna 15 lög sem öll eiga það sammerkt að hafa verið hljóðrituð fyrir Hljómskálann, velflest frumsamin og einnig velflest afrakstur samstarfs tveggja ólíkra tónlistarflytjenda í senn. Mörg þessara laga hafa notið mikilla vinsælda í kjölfar sýninga þáttanna og setið í hæstu hæðum vinsældalista.
Öll sömu lög er svo að finna á DVD disk sem fylgir í pakkanum.
- Mannlíf | 18. júní 2013 13:23Fjör á 17. júní í Reykjanesbæ - myndir
- Mannlíf | 18. júní 2013 11:38Fór á eftirlaun en heldur áfram störfum sem sjálfboðaliði
- Mannlíf | 17. júní 2013 19:58Díana Lind er heimakær skemmtikraftur
- Mannlíf | 15. júní 2013 09:22Jógaæði í Noregi!
- Mannlíf | 14. júní 2013 07:33Víkingaheimar á mörgum tungumálum
- Mannlíf | 13. júní 2013 08:02Svífur um á bleiku skýi


