Hljómar stigu á svið í Andrews
Dagskrá Ljósanætur lauk formlega í gær
Tónleikarnir Fyrsti kossinn: Hljómar í 50 ár fóru fram í Andrews theatre í gærkvöldi, við góðar undirtektir.
Tónleikarnir voru í boði Reykjanesbæjar og voru haldnir þeir af því tilefni að 50 ár eru frá því að hljómsveitin Hljómar frá Keflavík kom fyrst fram á sjónarsviðið. Eins og kunnugt er varð að fresta kvölddagsskrá Ljósanætur vegna veðurs en þar sem þessi dagskrárliður var sérstaklega undirbúinn fyrir hátíðina þá var ákveðið að bjóða upp á hann við bestu skilyrði.
Söngvararnir Eyþór Ingi, Valdimar Guðmundsson og Stefanía Svavars fluttu lög Hljóma ásamt sérvalinni hljómsveit sem Jón Ólafsson, bítlavinur stýrði. Sögumaður á tónleikunum var Baldur Guðmundsson sonur Rúnars Júlíussonar heitins. Undir lok tónleika stigu eftirlifandi meðlimir Hljóma á svið og sungu nokkur vel valin lög við mikinn fögnuð áhorfenda.
Myndasafn frá tónleikunum má sjá hér.
Valdimar og Eyþór Ingi eru tvímælalaust tveir af betri söngvurum landsins.
Hljómarnir hafa engu gleymt. Frá hægri: Gunnar Þórðarson, Engilbert Jensen og Erlingur Björnsson. Júlíus Guðmundsson sonur Rúnars Júlíussonar lék á trommur.
Myndir: HBB.