Hláturjóga í Púlsinum
Er langt síðan þú hefur hlegið upphátt og innilega? Viltu hlæja oftar? Næst síðasta fræðslukvöld vetrarins í Púlsinum er næstkomandi sunnudag, 14. mars og hefst klukkan 20. Þá kemur Valgerður Snæland, skólastjóri með meiru og kitlar hláturtaugar gestanna!
Hlátur er lækning við ýmsum kvillum. Það er hægt að beita hlátri almennt til lækningar á andlegum og líkamlegum sjúkdómum. Indverskur læknir að nafni Dr. Madan Kataria vakti fyrstur manna athygli á hugmyndinni um hóphlátur byggðan á grundvallarlögmálum jóga. Í hlátursmiðju kennir hann þátttakendum að tengja saman jógaæfingar og hláturvísindi. Tilgangurinn er;
-að eyða neikvæðu stressi úr líkama og sál
-að öðlast innri frið
-að bæta andlega líðan
-að bæta starfsanda, efla samskipti og afköst á vinnustöðum
-að styrkja líkamann í baráttu við erfið veikindi
-að efla sjálfstraustið og draga úr minnimáttarkennd.
Hláturjóga er tilvalið fyrir þá sem vilja auka hlátur, kímni og gleði í daglegu lífi.