HSS
HSS

Mannlíf

Hjólaði 154km fyrsta daginn
Miðvikudagur 11. ágúst 2010 kl. 08:26

Hjólaði 154km fyrsta daginn


Það gekk heldur betur vel fyrsta daginn hjá þeim nöfnum Haraldi Hreggviðssyni og Haraldi Helgasyni, sem í gærmorgun lögðu upp í hjólaferð hringinn í kringum landið. Tilgangurinn er að safna fé fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna en þeir félagar eru félagar í Lionsklúbbi Njarðvíkur.
Alls voru 154,1km lagðir að baki fyrsta daginn á sex tímum og þremur stundarfjórðungum. Í dag er svo ferðinni heitið á Kirkjubæjarklaustur.

Haraldur Hreggviðsson stígur hjólið en nafni hans er honum til halds og trausts á þjónustubifreið sem útbúin var til ferðarinnar.

Þeir sem vilja leggja fjáröflun Lionsklúbbs Njarðvíkur lið geta gert það með því að leggja inn á reikning 1109-05-412828, á kennitölu 440269-6489.
Styrktarsíminn er 901 5010.

Hér má sjá nokkrar svipmyndir frá gærdeginum í ferð þeirra félaga.




Bílakjarninn
Bílakjarninn