Bygg
Bygg

Mannlíf

Miðvikudagur 29. desember 1999 kl. 22:30

HJÁLPAÐI VEIKU FÓLKI Í SANDGERÐI

Einar Júlíusson fæddist 29.12 1919 í Bursthúsum í Hvalsneshverfi og ólst þar upp. Hann fluttist í Sandgerði árið 1944 og hefur alið manninn þar síðan. Hann byggði m.a. húsið Hæðarenda í Sandgerði og Túngötu 14 þar sem hann bjó í mörg ár. Einar hefur fengist við eitt og annað í gegnum tíðina en hann starfaði lengi sem sjómaður. Síðar fékk hann þann starfa að sprauta veikt fólk í Sandgerði. „Mér er efst í huga þegar ég hjálpaði veiku fólki í Sandgerði. Þegar pensilínið kom til sögunnar fékk ég þá atvinnu að sprauta fólk því ég hafði fengið tilsögn í því og það spurðist út. Það er hins vegar enginn sérstakur atburður sem stendur uppúr í minningunni.“
Bílakjarninn
Bílakjarninn