Hjálmar á tónleikum í Grófinni í kvöld

Tónleikarnir verða haldnir í húsnæði Bigga Guðna í Grófinni, þar sem bílasprautuverkstæði var til húsa og byrja Hjálmar að spila kl 22:00.
Um er að ræða vímulausa skemmtun þar sem öllu ungu fólki gefst kostur á að hlýða á tóna vinsælustu hljómsveitar Íslands. Það er ekki oft sem tónleikar sem þessir eru haldnir í iðnaðarhúsnæði og viljum við því benda fólki á að mæta tímalega því færri munu komast að en vilja.