Hittingur með hönnuðum í Duushúsum
Sýningin Hönnun á Suðurnesjum senn á enda.
Nú líður að lokum sýningarinnar Hönnun á Suðurnesjum sem Maris hönnunarklasi Suðurnesja stendur fyrir í samstarfi við Reykjanesbæ. Af því tilefni verða hönnuðir í klasanum á staðnum laugardaginn 16. ágúst og kynna þar verk sín áhugasömum. Þeir sem hafa áhuga á hönnun eru hvattir til þess að líta á sýninguna þessa síðustu sýningarhelgi.