Bygg
Bygg

Mannlíf

Fimmtudagur 26. júlí 2001 kl. 09:51

Hestafélagið Máni:Bætt aðstaða

Hestafélagið Máni var stofnað árið 1968 en í því eru nú 270 félagsmenn úr Garði, Grindavík, Vogum, Reykjanesbæ og nágrenni. Formaður félagsins er Jón B. Olsen en hann hefur gegnt því embætti sl. tvö ár. „Starfsemi hefur verið mjög lífleg undanfarin ár og hefur verið lögð sérstök áhersla á æskulýðsmál. Starfsemi þar hefur skilað miklum árangri bæði í keppni og samskiptum barna og unglinga innbyrðis og við önnur félög“, segir Sigurður Ragnarsson sem hefur tekið að sér að upplýsa blaðamann um starfsemina.
Félagið hefur einnig náð mjög góðum árangri í keppni. Börn og unglingar í Mána hafa fengið allt að 40% verðlauna sem veitt hafa verið á landsvísu. „Það sem gerir þetta enn ánægjulegra er góð samstaða foreldra og aðstandenda sem hafa hópað sig saman á mótum og hvatt sitt fólk til dáða“, segir Sigurður. Ýmsar uppákomur hafa verið innan félagsins undanfarin ár en auk móta hefur félagið staðið fyrir árshátíð á hverju ári, þorrablóti, reiðnámskeiðum og útreiðatúrum. „Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi“, segir Jón Olsen, formaður og hvetur bæjarbúa til að kynna sér starfsemi Mána. Síðustu ár hafa miklar umbætur orðir í aðstöðu, nýr keppnisvöllur hefur verið reistur en félagið hefur átt góð samskipti við bæjaryfirvöld við byggingu vallarins. Félagsmenn eru mjög stoltir af vellinum því í fyrsta skipti í 20 ár getur Máni haldið mót fyrir utanaðkomandi aðila. Stefnt er á að halda Íslandsmót fyrir barna- og unglingaflokk í komandi framtíð. Þá hefur verið gerður samningur á milli TÍR og Mána um reiðnámskeið fyrir börn og unglinga. Námskeiðin hafa tekist mjög vel og hafa færri komist á námskeiðin en vildu. „Þetta er glæsileg endurkoma Reiðskólans en starfssemi hans hefur legið niðri síðustu tvö ár“, segir Sigurður stoltur.
Bílakjarninn
Bílakjarninn