Herstöðin sem kom og fór
- Sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar opnar í dag
	Sýningin „Herstöðin sem kom og fór“ verður opnuð í dag, laugardaginn 6 febrúar 2016 í Gryfjunni Duus Safnahúsum. Sýningin stendur til 24. apríl 2016.
	
	Sýningin fjallar um sögu Keflavíkurstöðvarinnar sem hófst á stríðsárunum með byggingu tveggja flugvalla, rúmlega hálfrar aldar sögu varnarliðsins og hvað gerðist eftir að herstöðin lokaði, en í ár eru 10 ár liðin síðan herstöðinni var lokað.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				