HSS
HSS

Mannlíf

Herra Rokk særir blygðunarkennd Facebook
Myndin birtist á plötunni Með stuð í hjarta árið 1996.
Föstudagur 9. janúar 2015 kl. 16:18

Herra Rokk særir blygðunarkennd Facebook

Fræg mynd af rokkgoðinu fór fyrir brjóstið á samfélagsmiðlinum

Á árinu stendur til að halda sérstaka afmælistónleika til heiðurs Rúnari Júlíussyni, sem hefði orðið sjötugur á árinu. Að því tilefni ákváðu ættingjar Rúnars að halda til samfélagsmiðislsins Facebook og leita ráða hjá vinum og velunnurum Geimsteins og Rúnars heitins varðandi lagaval á tónleikunum,  sem fara fram í Stapa þann 11. apríl n.k.. Meðfylgjandi með stöðuuppfærslunni var fræg ljósmynd af Rúnari, þar sem hann mundar bassann íklæddur engu nema hatt, ullarsokkum og sólgleraugum. Bassinn nær þó að hylja það allra heilagasta, eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

Eitthvað fór myndin fyrir brjóstið á Mark Zuckerberg og félögum hjá Facebook, en þeir báðu Geimsteinsmenn um að myndinni yrði breytt eða hún fjarlægð þar sem of mikið af holdi væri til sýnis hjá rokkgoðinu. Eins sem stellingin hjá Rúnari þótti nokkuð tvíræð. Myndin stendur enn á vef Geimsteins, en ekki má notast við þessa frægu ljósmynd sem auglýsingu á Facebook, til þess þarf að hylja hold rokkarans betur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Myndin birtist á plötunni „Með stuð í hjarta árið“ árið 1996.