Hér er öll fegurð landsins sameinuð á einu svæði
Tómas J. Knútsson, foringi Bláa hersins, hefur haft í nógu að snúast í sumar við nokkur hreinsunarverkefni í fjörum Reykjanesskagans. Tommi hefur verið lengi að og rifjar upp í viðtali við Víkurfréttir þegar hann og félagar hans tóku að sér að hreinsa rusl undan Berginu áður en ljósin þar voru kveikt í fyrsta skiptið.
Hvernig varðir þú fyrsta sumarfríinu án takmarkana?
„Það var ekkert farið í sumarfrí þetta sumarið. Það var búið að skipuleggja nokkur hreinsunarverkefni í fjörum Reykjanesskagans og meðfram Suðurströndinni samkvæmt samningi við yfirvöld og var bara heilmikið að gera. Ekki hafa þó stjórnvöld sett neitt fjármagn til verksins eins og lofað var þannig að við erum bara róleg núna, kannski rætist úr haustinu og eitthvert smá ferðalag sér dagsins ljós út á land.“
Hvað stóð upp úr?
„Fyrsta apríl giftum við okkur og fórum í brúðkaupsferð til Þorlákshafnar, Eyrarbakka og borðuðum í Mathöllinni í Hveragerði. Óvæntasta atriði ársins. Þetta var ekki gabb og kom öllum í opna skjöldu.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands?
„Reykjanesskaginn er mitt uppáhalds svæði landsins. Hér er öll fegurð landsins sameinuð á einu svæði.“
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Hver veit nema að skroppið verði í sólarlandafrí. Annars eru næg verkefni innandyra sem betur fer.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Ljósanótt sem og aðrar bæjarhátíðir eru ákaflega skemmtilegar og fá allt það besta fram hjá mannfólkinu, allir ættu að geta notið sín og haft gaman af. Mér finnst skemmtilegast að fara um fimmtudagskvöldið á milli sýninganna og verslanna og hitta fólk, árgangagangan er mjög skemmtileg og einnig er öll tónlistarflóran mögnuð upplifun.“
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
„Bestu minningar mínar frá Ljósanótt eru tvær. Sú fyrsta var þegar Steini á Hótel Keflavík bað okkur strákana í Bláa hernum að hjálpa sér að gera þessa fyrstu hátíð eins ánægjulegasta og hægt væri en auðvitað vissum við ekkert hvernig til myndi takast, alltaf spilar veðrið sína rullu og þetta var bara svona tilraun. Við strákarnir hreinsuðum allt Bergið og fjöruna af öllu rusli, kveiktum á rosalega mörgum friðarkertum meðfram allri ströndinni og vorum í allskonar verkefnum út um allt til að láta þetta ganga sem best, veðrið var frábært 15 stiga hiti og allt gekk upp. Ég man alltaf hvað okkur fannst þetta hafa heppnast vel og bæjarbúar virtust hafa skemmt sér konunglega. Síðan er minningin mjög skemmtileg þegar ég var með aðsetur í Grófinni 2 og var alltaf með opið hús hjá Sportköfunarskóla Íslands og sjávardýrasýningarnar fyrir börnin. Að lokum eru bílarnir og hjólin alltaf augnayndi.“