Hélt upp á afmælið með tónleikum
Listamaðurinn Guðmundur Rúnar Lúðvíksson í Njarðvík hélt upp á 55 ára afmæli sitt um helgina með flottum tónleikum þar sem hann fékk til liðs við sig nokkra valinkunna tónlistarmenn. Tónleikarnir fóru fram í Safnarheimili Innri-Njarðvíkurkirkju og var allt að því húsfyllir. Guðmundur flutti þar sitt hvað af lagasmíðum sínum og ljóðum frá listamannsferlinum. Svipmyndir frá tónleikunum er að finna á ljósmyndavefnum hér á síðunni.
VFmynd/elg