HSS
HSS

Mannlíf

Helsingjanef finnst við Selatanga
Laugardagur 29. mars 2008 kl. 11:42

Helsingjanef finnst við Selatanga



Nokkur formfögur skeldýr urðu á vegi Ellerts Grétarssonar, ljósmyndara Víkurfrétta, á ferð hans um Selatanga um páskahelgina.

Undir rekaviðardrumbi rak hann augun í svokallað Helsingjanef, hrúðurkarl, sem er sjaldgæf sjón hér við land en getur í einstaka tilfellum borist með reköldum upp í fjörur, samkvæmt því sem fram kemur á vísindavefnum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ellert fann Helsingjanef á öðrum stað í nágrenninu og má sjá mynd hans af fyrirbærinu hér að ofan. Helsingjanef liggur ekki fast við „hýsil“ sinn heldur hangir á honum á eins konar stilk og skýtur út örmum til að taka til sín fæðu.

Þykja þeir nokkuð góðir til átu, sérstaklega stilkurinn.

Skemmtileg munnmæli eru um Helsinganef (goose barnacle á ensku) en í fyrndinni hélt fólk að Helsingjagæs (barnacle goose) sprytti úr þessu litla skeldýri og þaðan hafa báðar tegundir nafn sitt  á ensku. Var þessi trú einnig mjög hentug að því leyti að hægt var að skilgreina gæsirnar sem fisk og því leggja þær sér til muns á föstu kaþólikka.

VF-mynd/elg - Fleiri myndir Ellerts á www.elg.is og á bloggsíðu hans, http://elg.vikurfrettir.is/